Aðalfundur 14. maí frá kl. 13.30 – 15.30 í Fannborg 2 í Kópavogi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. Skýrsla stjórnar Endurskoðaðir reikningar lagðir fram Félagsgjald ákveðið Kjör stjórnar Breytingar á starfsreglum Hugleiðingar formanns Önnur mál Hlé og veitingar 8. Fyrirlestur Margrétar Birnu Þórarinsdóttur sálfræðings um kjörþögli. Félagsmenn mega bjóða með sér einum gesti sem borgar 500 kr. Kristín formaður hof fundinn og gerði að tillögu að Fjóla Þorvaldsdóttir yrið fundastjóri og Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir ritari. Kristín Sigurðardóttir formaður flutti skýrslu stjórnar og Jóhanna Guðrún gjaldkeri kynnti ársreikninga Faghópsins. Ákveðið var að hafa áfram sama félagsgjald kr. 2.000. Eftir venjuleg aðalfundarstörf flutti Margrét Birna Þórarinsdóttir fyrirlesur um kjörþögli. Mjög áhugaverður fyrirlestur sem kjörþögli. Glærurnar hennar má finna á facebokk síðu faghópsins. Stjórnin ákvað í þetta skiptið að leyfa gestum að hlusta á fyrirlesturinn og greiða fyrir það 500 kr. Það var mjög ánægjulegt að sjá hvað margir starfsmenn nýttu sér það. Eftir þetta starfsár hætta í stjórn Kristín Sigurðardóttir formaður, Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir ritari, Bryndís Héðinsdóttir, Katrín G. Guðjónsdóttir og Elva Haraldsdóttir. Kosning í stjórn. Ný stjórn er þá skipuð eftirfarandi einstaklingum: Formaður Faghópsins er Aðaleiður Una Narfadóttir Guðrún Jóhanna Rafnsdóttir gjaldkeri Ágústa Kristmundsdóttir Margrét Ágústa Hallsdóttir Hanna Leifsdóttir Varamenn: Inga Rut Ólafsdóttir Margrét Björk Björgvinsdóttir Vefstjóri er Fjóla Þorvaldsdóttir Endurskoðendur reikninga eru: Helga Hansdóttir og Sigurborg Sveinbjörnsdóttir, Heiður Þorsteindóttir til vara Ein breytingatillaga kom á fundinum frá Fjólu Þorvaldsdóttur á 3.gr. Umræður voru um breytingatillöguna, orðalagi breytt og hún samþykkt. Hún er svohljóðandi: › 3. gr. Aðilar að Faghópnum geta orðið allir leikskólakennarar sem lokið hafa námi í sérkennslufræðum og greiða gjöld til Faghópsins. Sækja þarf um aðild til stjórnar Faghópsins á heimasíðu Faghópsins. Jafnframt er farið fram á að viðkomandi sendi inn afrit af leyfisbréfi. Uppfylli leikskólakennari ekki inngönguskilyrðin hér á undan, en starfar sem sérkennslustjóri í leikskóla, sérkennsluráðgjafi sveitarfélags eða ríkisstofnunnar getur hann sótt um tímabundna undanþágu til stjórnar Faghópsins, sem hefur úrskurðarvald í þeim málum. Önnur mál Ánægja með störf stjórnar faghópsins. Fundaritari: Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir
© Copyright 2024 Paperzz