フランス産 黒トリュフオイル 250ml 12本セット 業務用 プランタン社

AÐ GERA GOTT BETRA - OG BETRA BEST
Fjórtánda svæðisþing tónlistarskóla
Kl. 09:00
Kaffi og spjall
Kl. 09:30
Bræðingur - tónlistaratriði
Setning þings - Dagrún Hjartardóttir, sérfræðingur á skrifstofu FT.
Sigríður Aðalsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga, kynnir
vinnustofuna Spegill, spegill, herm þú mér - og safnar tillögum að umræðuefni frá
þinggestum.
Kl. 10:00
Sagan endalausa - kjaramál
Kjaraviðræður FT og SNS. Hvað er eiginlega málið?
Markmið og áherslur – samanburðarupplýsingar - gagntilboð FT.
Oddur Jakobsson, hagfræðingur Kennarasambands Íslands og Dagrún Hjartardóttir
og Sigríður Aðalsteinsdóttir fulltrúar FT í samninganefnd, greina frá og sitja fyrir
svörum.
Kl. 12:00
Hádegishlé – matur
Kl. 13:00
„LHÍ og landsbyggðin - tækifæri eða tómt vesen“
Tryggvi M. Baldvinsson, deildarforseti tónlistardeildar LHÍ, ræðir um samstarf
deildarinnar við landsbyggðina og verkefnin sem þarf að leysa. Fyrst og fremst vill
Tryggvi þó safna í sarpinn hugmyndum að samstarfsverkefnum og eiga gott samtal
við fagfólkið á viðkomandi stöðum.
Kl. 14:00
Kaffi
Kl. 14:30
Spegill, spegill herm þú mér ...
Hver er sjálfsmynd tónlistarkennarans, glímir stéttin við ímyndarkrísu eða er hún í
uppsveiflu? Lítum okkur nær, hvað stöndum við fyrir og hverju viljum við áorka?
Mögulegur punktar til umræðu:
Kostir og gallar starfsins. Hver erum við? Erum við góð í því sem við erum
að gera? Hvað þurfum við að gera betur? Hvar liggja tækifærin? Hver
viljum við vera? Hvað er krefjandi við starfið?
Kl. 16:00
Þinglok
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) / Samtök tónlistarskólstjóra (STS)